

Það er með rólegra móti á félagaskiptamarkaðnum hjá Manchester United og fátt sem bendir til stórra tíðinda fyrir lokun gluggans í kvöld.
Það kemur ekki á óvart þar sem stjórnendur félagsins hafa lengi lagt áherslu á að möguleg kaup í þessum mánuði yrðu aðeins leikmenn sem eru einnig á radarnum fyrir sumargluggann.
Nöfn á borð við Carlos Baleba, Elliot Anderson og Adam Wharton hafa verið nefnd í því samhengi, en ekkert bendir til að United klári slík kaup núna.
Hins vegar hafa orðið hreyfingar í akademíu félagsins. Fyrirliði U21 árs liðsins, Jacob Devaney, er á leið á lán til St Mirren og kantmaðurinn James Scanlon fer á lán til Swindon Town.
Enskir miðlar búast við rólegu kvöldi fram að lokafresti og telja ólíklegt að stór mál komi upp á síðustu stundu.
„Aldrei segja aldrei,“ en eins og staðan er núna virðist United halda að sér höndum.