fbpx
Mánudagur 09.febrúar 2026
433Sport

Carragher vonast til þess að eitthvað óvænt gerist hjá Liverpool í dag

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 2. febrúar 2026 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher fagnar því að Liverpool hafi náð samkomulagi um kaup á varnarmanninum Jeremy Jacquet frá Rennes, en telur þó að félagið þurfi enn frekari styrkingu í varnarlínuna.

Jacquet skrifar undir hjá Liverpool í dag en kemur ekki formlega til félagsins fyrr en í sumar.

Carragher sagði á Sky Sports að Liverpool þyrfti varnarmenn strax og enn frekar þegar horft er til næsta tímabils. Hann benti á að óvissa væri um framtíð Ibrahima Konaté, sem hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning, og gæti því farið frá félaginu.

Þá minntist hann á að ungi varnarmaðurinn Giovanni Leoni, sem Liverpool fékk til liðs við sig síðasta sumar, sé frá keppni vegna krossbandsslits.

Að mati Carragher er félagið að safna ungum miðvörðum til framtíðar, en hann vill samt sjá annan varnarmann koma inn áður en glugginn lokar. „Ég myndi enn vilja sjá Liverpool kaupa annan varnarmann í dag því liðið mun þurfa á því að halda áður en tímabilinu lýkur,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin

Piers Morgan og Laura Woods tæta hana í sig fyrir nýjustu ummælin
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Efstur á lista Manchester United

Efstur á lista Manchester United
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Helgi mætti ekki aftur eftir þessa uppákomu – „Var eins og líkamsárás“

Helgi mætti ekki aftur eftir þessa uppákomu – „Var eins og líkamsárás“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Uppeldisfélagið vill ekki fá hann – Bauð Marseille að fá sig

Uppeldisfélagið vill ekki fá hann – Bauð Marseille að fá sig
433Sport
Í gær

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar

Hjálmar heldur að margir séu á villigötum og að þetta gæti komið á óvart í sumar
433Sport
Í gær

Guardiola ver orð sín – Spyr af hverju hann má ekki tjá sig

Guardiola ver orð sín – Spyr af hverju hann má ekki tjá sig