

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt bræður í fangelsi fyrir aðild að skotárás við Leifasjoppu í Iðufelli í Breiðholti í ágúst í fyrra. Marcin Nabakowski var dæmdur í tveggja ára og sjö mánaða fangelsi en bróðir hans, Rafal Nabakowski, var dæmdur í tveggja ára og átta mánaða fangelsi.
Marcin var ákærður fyrir að skjóta á bíl fyrir utan sjoppuna og stefna þannig lífi fólks í bílnum í hættu. Rafal var sakfelldur fyrir að stefna lífi og heilsu annarra í augljósan háska með því að hleypa af skotvopni. Hann var hins vegar sýknaður af ásetningi brotsins. Gæsluvarðhald sem bræðurnir hafa sætt síðan í ágúst í fyrra dregst frá refsidómnum.