
Roberto De Zerbi, sem tók við Tottenham í vor og bjargaði liðinu frá falli, hefur engan áhuga á að missa bakvörðinn Pedro Porro í sumar.
The Athletic sagði frá því í gær að Manchester City væri með Porro á blaði hjá sér fyrir félagaskiptagluggann í sumar.

Spænski bakvörðurinn hefur verið einn besti leikmaður Tottenham undanfarin tímabil og þykir henta leikstíl City vel.
De Zerbi lítur hins vegar á Porro sem algjöran lykilmann í verkefninu sem framundan er og tekur ekki í mál að selja hann.
Porro er samningsbundinn Tottenham næstu tvö tímabil.
🚨 Understand Tottenham manager De Zerbi see Pedro Porro as crucial player and the club also don’t want him to leave.
Despite reports, #THFC want Porro to stay. pic.twitter.com/zasiRf8hCs
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 11, 2026