
Chelsea er sagt kanna möguleikann á að fá Marcus Rashford á láni síðar í sumar. Talið er þó að félagið myndi aðeins gera atlögu að því ef ekki tekst að landa öðrum skotmörkum.
Framtíð Rashford er í óvissu eftir að Barcelona ákvað að virkja ekki kauprétt sinn á leikmanninum eftir lánsdvöl hans hjá félaginu.
Enska landsliðsmanninum gekk nokkuð vel á Spáni, þar sem hann skoraði 14 mörk og lagði upp 10 til viðbótar á síðustu leiktíð.
Ólíklegt þykir að Rashford eigi framtíð hjá Manchester United, hvar hann er enn á mála. Hann verður því á ferðinni í sumar og Chelsea fylgist með gangi mála.