
Wolves hefur rekið knattspyrnustjórann Rob Edwards eftir aðeins sjö mánuði í starfi.
Edwards hætti með Middlesbrough og tók við liðinu í nóvember en náði ekki að bjarga því frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.
Wolves endaði á botni deildarinnar og vann aðeins fimm af 30 leikjum undir stjórn Edwards.
Aðstoðarþjálfararnir Harry Watling og Paul Trollope eru einnig á förum frá félaginu.
Portúgalski stjórinn Cesar Peixoto, sem gerði flotta hluti með Gil Vicente á síðustu leiktíð og endaði í sjötta sæti portúgölsku deildarinnar, hefur verið orðaður við starfið.