
Fulham hefur samkvæmt The Athletic átt í viðræðum við Alvaro Arbeloa um að taka mögulega við sem stjóri liðsins.
Fulham leitar nú að eftirmanni Marco Silva sem yfirgaf félagið eftir fimm ár í starfi og tók við Benfica.
Arbeloa hætti nýverið sem stjóri Real Madrid og er Jose Mourinho tekinn við. Hann tók tímabundið við liðinu í janúar eftir brottför Xabi Alonso.
Einhverjir setja spurningamerki við reynslu Arbeloa sem aðalþjálfara en hann er samt sem áður einn af þeim kostum sem Fulham skoðar.