

Framtíð Jökuls Elísabetarssonar var til umræðu í Dr. Football hlaðvarpinu í dag eftir tap liðsins gegn Aftureldingu í átta liða úrslitum bikarsins í gær.
Eftir slæmt gengi í Bestu deildinni var þetta tap þungt högg í maga Stjörnunnar og enn a ný er farið að velta framtíð þjálfarans fyrir sig.
„Stjarnan hefur ekki náð neinum takti í allt sumar, ekkert jafnvægi í þessu. Þessir leikur eru endalok gjaldþrotsins, fyrir Jölla er ég þetta held ég búið,“ sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson sérfræðingur þáttarins.
Hann segir hins vegar erfitt fyrir félög að ráðast í þjálfarabreytingar í dag, dýr framkvæmd sem félögin ráða ekki öll við.
„Það er erfitt að reka menn í dag, fyrirtæki eru að draga saman seglin og fyrirtæki eru í samstarfi við þau. Þetta eru síðustu reikningarnir sem fyrirtæki borga. Jölli hefur farið í allar áttir með þetta, hann hefur spilað bæði sóknar og varnarfótbolta. Í fyrra er þetta blanda af báðu, múra fyrir þegar Caulker kemur inn. Mörg úrslit þá voru heppni, núna finnst mér Jökull á leið í átt sem liðið höndlar ekki að spila.“
Hjörvar Hafliðason gagnrýndi svo liðsstjóra liðsins, Garp Elísabetarson sem fékk rautt spjald undir lok leiks í gær.
„Þá fær bróðir hans rautt spjald undir lok leiks, það er bara kjánalegt. Ef þú ert liðstjóri, ekki vera að fara í dómarann. Rautt spjald fyrir munnsöfnuð, hann hefur verið að láta Twana (Dómara leiksins) heyra það. “
„Ég veit ekki með þessa Stjörnumenn, hverjir eru að bæta sig?,“ sagði Hjörvar.