

Þrátt fyrir að Gary Lineker sé ekki lengur andlit BBC á heimsmeistaramótum verður hann engu að síður áberandi í umfjöllun um HM í Bandaríkjunum.
Lineker er staddur í New York ásamt Alan Shearer og Micah Richards þar sem þeir taka upp vinsæla hlaðvarpsþáttinn The Rest is Football fyrir Netflix. Þremenningarnir hafa komið sér fyrir í glæsilegri íbúð með útsýni yfir Times Square og stemningin virðist vera létt og skemmtileg.
Í einu af fyrstu innslögum þeirra lét Shearer gamminn geisa og skaut á Lineker vegna brottfarar hans frá BBC. Þeir félagar fá 14 milljónir punda fyrir vinnu sína frá Netflix eða 2,3 milljarða.
„Þú ert ekki lengur mikilvægur. Þú ert farinn frá BBC og kominn til Netflix með okkur,“ sagði Shearer í léttum tón.
Lineker svaraði um hæl og sagði það vera skref í rétta átt áður en hann skaut til baka á félaga sína.
Brottför Lineker frá BBC hefur vakið mikla athygli en hann virðist hvergi nærri hættur í fjölmiðlum. Framleiðslufyrirtæki hans, Goalhanger, hefur vaxið hratt á undanförnum árum og var nýlega nefnt eitt hraðast vaxandi fyrirtæki Bretlands.
Á meðan hefðbundnar sjónvarpsstöðvar draga úr umsvifum sínum á stórmótum virðist Netflix vera tilbúið að fjárfesta enn frekar í knattspyrnuumfjöllun, með Lineker og félaga í fararbroddi.