fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Gæti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi fyrir nauðgun

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 7. mars 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi framherji Wolves og Nottingham Forest, Rafa Mir, gæti átt yfir höfði sér þungan fangelsisdóm eftir að spænskir saksóknarar kröfðust refsingar í máli sem tengist alvarlegu kynferðisbroti.

Saksóknarar á Spáni sögðu að þeir færu fram á samtals tíu og hálfs árs fangelsisdóm yfir hinum 28 ára knattspyrnumanni, sem leikur nú með Elche í La Liga á láni frá Sevilla.

Getty Images

Mir var ákærður í október á síðasta ári eftir langa rannsókn sem hófst þegar hann var handtekinn í september 2024. Rannsóknardómari taldi þá að næg gögn væru til staðar til að setja hann fyrir dóm.

Samkvæmt dómsgögnum var hann ákærður fyrir kynferðisbrot með ofbeldi og samræði.

Konan sem lagði fram kæruna var 21 árs þegar atvikið á að hafa átt sér stað. Hún heldur því fram að árásin hafi átt sér stað á heimili Mir í bænum Bétera, skammt frá Valencia, eftir að þau höfðu hist á skemmtistað.

Vinur Mirs, Pablo Jara, var einnig handtekinn og ákærður fyrir aðra kynferðisárás á vinkonu konunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi

Xavi varpar sprengju – Segir forsetann hafa komið í veg fyrir skipti Messi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sagði stanslaust kynlíf með eiginmanninum hafa þessi áhrif – Kveðst sjá eftir ummælum sínum

Sagði stanslaust kynlíf með eiginmanninum hafa þessi áhrif – Kveðst sjá eftir ummælum sínum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla

Elon Musk fær á baukinn – Ógeðsleg ummæli um Diogo Jota meðal annars látin falla
433Sport
Í gær

Fyrirtæki hans úrskurðað gjaldþrota

Fyrirtæki hans úrskurðað gjaldþrota
433Sport
Í gær

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar

Kjartan og Andri gefa lítið fyrir breytingatillögu goðsagnarinnar
433Sport
Í gær

Nablinn segir frá 250 þúsund króna fjárfestingu sem var sú besta í lífi hans – Þurfti að hugsa sig vel um

Nablinn segir frá 250 þúsund króna fjárfestingu sem var sú besta í lífi hans – Þurfti að hugsa sig vel um
433Sport
Í gær

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“

„Þetta er auðvitað geggjaður ferill“