

Alejandro Garnacho, vængmaður Chelsea, hefur vakið athygli í spænskum fjölmiðlum vegna nýs sambands síns við samfélagsmiðlastjörnuna Adriana Lobaz.
Garnacho, sem skildi við fyrrverandi kærustu sína Evu Garcia síðasta sumar, hefur verið orðaður við Lobaz eftir að þau sáust saman í ferðalagi í Egyptalandi á dögunum. Garcia er móðir tveggja ára sonar hans, Enzo, og höfðu þau verið saman í rúm fjögur ár áður en þau hættu saman.
Parið vakti fyrst athygli þegar þau birtu svipaðar myndir á samfélagsmiðlum frá ferð sinni til Egyptalands, meðal annars við pýramídana í Gísa nærri Kaíró. Þau merktu þó ekki hvort annað á myndunum, en fylgjendur tóku eftir því að þau virtust vera á sama stað.

Samkvæmt spænskum fréttum hefur samband þeirra þróast hratt. Blaðamaðurinn Roberto Antolín fullyrðir að Lobaz hafi jafnvel flutt til London og búi nú með Garnacho. Hann heldur því einnig fram að leikmaðurinn hafi gefið henni kreditkort án útgjaldatakmarkana.
„Hún býr með honum í London og hann hefur gefið henni kreditkort svo hún geti keypt hvað sem hún vill,“ sagði Antolín í spænskum sjónvarpsþætti. Hann bætti þó við að Garnacho virðist ekki líta á sambandið sem langtímasamband og hafi jafnvel forðast að hitta fjölskyldu hennar.
Þrátt fyrir umræðuna utan vallar hefur Garnacho fengið tækifæri með Chelsea undanfarið. Hann var í byrjunarliðinu gegn Aston Villa í vikunni vegna þess að Pedro Neto var í leikbanni og átti nokkrar hættulegar tilraunir í leiknum sem vöktu athygli þjálfarans.