

Leah Taylor, sem varð þekkt úr raunveruleikaþættinum Love Island, hefur sakað enska landsliðsmanninn Morgan Rogers um framhjáhald á meðan þau voru saman.
Rogers, sem er 23 ára og leikur með Aston Villa, var í sambandi við Taylor í nokkra mánuði áður en þau hættu saman í janúar síðastliðnum. Samband þeirra var frekar leynt á meðan það stóð yfir og Taylor hafði lítið sagt um ástæðuna fyrir sambandsslitunum þar til nú.
Í viðtali í hlaðvarpinu Private Story, sem áhrifavaldurinn Ami Charlize stýrir, sagði Taylor frá því að sambandið hafi hafist eftir að þau kynntust í kringum Wimbledon-mótið í júlí á síðasta ári. Síðar fóru þau saman í frí og að hennar sögn varð sambandið alvarlegra eftir það.
„Við fórum saman í frí og eftir það fórum við í raunverulegt samband. Ég hélt að allt gengi vel,“ sagði Taylor.

Hún segir þó að hún hafi síðar komist að því að Rogers hefði haldið framhjá sér. „Síðan komst ég að því að hann hafði haldið framhjá mér. Ég hugsaði bara: ‘Vá’. Þá var þetta búið.“
Taylor sagði að hún hefði strax ákveðið að slíta sambandinu. „Ef einhver gerir svona við mig, jafnvel þó ég elski viðkomandi, þá get ég ekki litið á hann á sama hátt aftur. Ég get ekki treyst einhverjum sem gerir þetta,“ útskýrði hún.
Þrátt fyrir það segir hún að hún beri ekki illan hug til Rogers. „Ég hata það sem gerðist en ég vil ekki ganga um með hatur. Að lokum vil ég bara halda áfram með lífið,“ bætti hún við.
Rogers hefur ekki tjáð sig opinberlega um ásakanirnar.