

Glenn Hoddle, fyrrum leikmaður og knattspyrnustjóri Tottenham, hefur boðist til að taka við liðinu ef Igor Tudor verður látinn fara frá félaginu.
Tudor tók við sem bráðabirgðastjóri Tottenham fyrir þremur leikjum síðan en hefur tapað öllum þeim leikjum. Nýjasta tapið kom gegn Crystal Palace þar sem Tottenham laut í lægra haldi 3-1, sem hefur aukið þrýsting á króatíska stjórann.
Samningur Tudor við félagið gildir til loka tímabilsins en óvíst er hversu lengi hann heldur starfinu ef gengi liðsins batnar ekki. Ef Tottenham ákveður að skipta um þjálfara fyrr en áætlað var hefur Hoddle lýst yfir áhuga á að stíga inn í starfið.
Hoddle, sem er 68 ára, sagði í hlaðvarpi að hann myndi vel íhuga að snúa aftur í þjálfun, sérstaklega ef um Tottenham væri að ræða.
„Ég held að ég myndi gera það, sérstaklega með Tottenham því það er mitt félag. Ég hef stutt liðið síðan ég var átta ára og það hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu,“ sagði Hoddle.