
Austurríski landsliðsmaðurinn Konrad Laimer, sem spilar fyrir Bayern Munchen, er orðaður við Liverpool þessa dagana.
Hinn 28 ára gamli Laimer er í nokkuð stóru hlutverki hjá Bayern en mun aðeins eiga ár eftir af samningi sínum í sumar.
Liverpool hyggst því láta á það reyna að bjóða í hann og ku vera til í að borga um 35 milljónir punda fyrir kappann.
Laimer, sem gekk í raðir Bayern frá RB Leipzig árið 2023, getur spilað bæði á miðjunni sem og í bakverði og telur Liverpool það góðan kost.