
Það hefur gefist vel fyrir Bayern Munchen að sækja leikmenn í ensku úrvalsdeildina undanfarin ár og Þjóðverjarnir hyggjast halda því áfram.
Eftir afar vel heppnuð kaup á Harry Kane, Michael Olise og Luis Diaz vilja Bæjarar bæta við sig Kevin Schade, leikmanni Brentford.
Vinstri kantmaðurinn hefur verið frábær á tíma sínum hjá Brentford og talið er að hann gæti kostað 50 milljónir punda.
Schade er 24 ára gamall Þjóðverji sem kom frá Freiburg 2023. Hann er samningsbundinn Brentford til 2028.