fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Ívar furðar sig á að þessu sé ekki gert hærra undir höfði – „Fara allir á móti þeim“

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 14. mars 2026 19:30

Mynd: Breiðablik

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Breiðablik verður ekki í Evrópukeppni í sumar eftir að hafa misst naumlega af sæti þar í fyrra. Blikar fóru alla leið í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar fyrir áramót og vill Ívar endurtaka leikinn á tíma sínum í Kópavogi, en hann gekk í raðir félagsins á dögunum frá KA.

„Þegar þessi lið eru að fara alla leið fara allir á móti þeim einhvern veginn. Umgjörðin og umtalið um Breiðablik núna í Evrópukeppni var svakalega lítið og maður vissi varla þegar þeir voru að spila. Þetta er eins með Víkingana, fyrir utan kannski þegar þeir fóru áfram og spiluðu á móti Panathinaikos.

Þetta er svo ótrúlega stórt, við erum að fá risastór lið með hundrað sinnum hærra fjármagn en Besta deildin til samans. Það kitlar rosalega hjá mér og það er búið að leggja þetta þannig upp að ef þú ert Íslandsmeistari ertu með nokkuð beina leið í þetta,“ sagði Ívar.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar