fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
433Sport

Höskuldur vill breytingar hér á landi – „Mér finnst þetta svo augljós betrumbót fyrir alla“

433
Laugardaginn 14. mars 2026 09:00

Höskuldur gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni.

Lengjubikarinn hefur verið mikið til umræðu í ár, eins og síðustu ár. Margir eru á því að það þurfi að breyta undirbúningstímabilinu hér á landi. Lið virðast ekki leggja mikið upp úr leikjum í Lengjubikarnum og senda oft ekki sitt besta lið til leiks.

„Það er búið að ræða mikið hver gulrótin gæti verið til að lið mæti með sitt besta lið en í enda dags er hvert og eitt lið á sinni vegferð og þjálfarinn metur hvernig er best að manna liðið á þeim degi. Við erum komnir með svo ítarlegar mælingar á allt að það er oft bara verið að stilla menn af eftir erfiða æfingavinnu og mikið álag. Það hefur verið talað um að spila bikarinn fram að undanúrslitum fyrir tímabil sem væri bara gott og blessað, ég væri mjög til í að byrja fyrr,“ sagði Ívar um málið.

Höskuldur vill taka upp leið Svía, sem spila undankeppni fyrir bikarkeppnina frá því snemma árs og klára hana svo um sumarið.

„Ég er mjög skoðanasterkur með þetta, ég vil innleiða sænsku leiðina. Þá ertu óumflýjanlega með það mikla gulrót að þú ert búinn að gera þennan bikar að ótrúlega þýðingamiklum leikjum þar sem er Evrópusæti undir. Og þú nærð samt hápunktinum í sól og blíðu um sumarið.

Mér finnst þetta svo augljós betrumbót fyrir alla, sérstaklega þegar horft er til þess að það þyrfti að búa til meira svigrúm fyrir liðin okkar í Evrópu. Þá ertu búinn að fría upp ákveðið pláss þarna,“ sagði Höskuldur.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum

Tudor á því að Kinsky muni stíga upp úr erfiðleikunum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“

Höskuldur var svekktur með ákvörðun Breiðabliks – „Ég er ekkert feiminn við að segja það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar

United á eftir Fernandes sem gæti verið til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar

Vilja framherja þrátt fyrir mikla eyðslu síðasta sumar