fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

KA staðfestir komu Djuric

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. mars 2026 09:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild KA hefur borist gríðarlegur liðsstyrkur fyrir komandi sumar en Danijel Dejan Djuric skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við félagið. Óhætt er að fullyrða að koma Djurics hingað norður er ansi stór viðbót fyrir sumarið en hann mætir norður frá Króatíska liðinu Istra.

Djuric, sem er 23 ára gamall, er sóknarsinnaður miðjumaður og ætti að vera öllum knattspyrnuunnendum landsins vel kunnugur enda hefur hann verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár. Hann vakti verðskuldaða athygli í yngriflokkum Breiðabliks sem kom honum út til danska liðsins FC Midtjylland árið 2019 er hann var aðeins 16 ára gamall.

Hann lék með Midtjylland í þrjú ár uns hann sneri aftur til Íslands og gekk þá í raðir Víkings. Hjá Víkingum sýndi hann og sannaði hve frábær leikmaður hann er og var lykilmaður er liðið varð Íslands- og Bikarmeistari auk þess að gera frábæra hluti í Evrópu. Eftir tvö og hálft ár í Víkinni keypti svo Króatíska liðið Istra kappann en þar lék hann alls 19 leiki en hann gekk í raðir þeirra fyrir rétt rúmlega ári. Hann vildi þó stærra hlutverk og má með sanni segja að mikill áhugi hafi verið á kappanum þegar það varð ljóst að hann væri laus og gríðarlega jákvætt að sjá hann velja að ganga í raðir KA.

Djuric hefur leikið 3 A-landsleiki fyrir Íslands hönd auk þess að leika 47 leiki fyrir yngrilandsliðin

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga

Sverrir með bandið í frábærum sigri – Á brattann að sækja fyrir Hákon og félaga
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman

Nokkrir möguleikar á borðinu fyrir Lewandowski – Hugsanlega áfram eftir allt saman
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar

Vilja Kinsky burt eftir hörmungar vikunnar
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona skoðar aðra kosti ef ekki næst að semja um Rashford

Barcelona skoðar aðra kosti ef ekki næst að semja um Rashford