fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Segir leikmann sinn hafa beðist afsökunar eftir gærkvöldið

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Chelsea tapaði 5-2 fyrir Paris Saint-Germain í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Bradley Barcola kom PSG yfir snemma leiks en Malo Gusto jafnaði fyrir Chelsea. Ousmane Dembele kom franska liðinu aftur yfir fyrir hálfleik, áður en Enzo Fernandez jafnaði metin í 2-2.

Mistök hjá markverðinum Filip Jorgensen leiddu hins vegar til þriðja marks PSG þegar Vitinha skoraði eftir að hafa komist inn í sendingu hans. Í lokin bætti Khvicha Kvaratskhelia við tveimur mörkum og tryggði PSG stóran sigur.

Eftir leikinn sagði þjálfari Chelsea, Liam Rosenior, að Jörgensen hefði beðist afsökunar á mistökunum í klefanum.

„Leikmenn gera mistök. Filip er ekki sá fyrsti og verður ekki sá síðasti. Honum til hróss þá tók hann ábyrgð og bað liðsfélaga sína afsökunar,“ sagði Rosenior.

Hann tók jafnframt sjálfur ábyrgð á hruni liðsins undir lok leiksins.

„Síðustu 15–20 mínúturnar voru klikkaðar og það er á mína ábyrgð. Við þurfum að vera rólegri þegar áföll dynja á okkur,“ sagði hann.

Seinni leikur liðanna fer fram á Stamford Bridge 17. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Byrjaðir að ræða við fyrirliða City sem getur komið frítt í sumar

Byrjaðir að ræða við fyrirliða City sem getur komið frítt í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga

Arsenal virðist hætta við en Manchester liðin hafa áhuga
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi

Býr enn á hóteli við vinnustaðinn – Flestir vilja láta reka hann eftir 25 daga í starfi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð
433Sport
Í gær

Vekur mikla athygli – Virðist blómstra eftir skilnað foreldra sinna

Vekur mikla athygli – Virðist blómstra eftir skilnað foreldra sinna
433Sport
Í gær

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár