
Það er líklegast að Tottenham ráði bráðabirgðastjóra út leiktíðina og stjóra til frambúðar í sumar, samkvæmt Lyall Thomas á Sky Sports.
Thomas Frank var rekinn í morgun eftir afleitt gengi. Daninn tók við í sumar en liðið er í 16. sæti og harðri fallbaráttu.
Nokkrir hafa verið mátaðir við stjórastólinn frá því fréttirnar bárust í morgun, til að mynda Roberto De Zerbi, sem yfirgaf Marseille í gærkvöldi.
Thomas segir að Tottenham muni að öllum líkindum ráða stjóra út tímabilið, aðallega þar sem búist er við því að miklar hræringar verði á stjóramarkaðnum í sumar. Félagið vill meta sín mál þegar þar að kemur.
As it stands, early indications are that an interim appointment until the end of the season is the most likely route #Tottenham will go down. There are a number of reasons for this but I think high among them is that there is expected to be a lot of change in head coach market in… https://t.co/vm1LLp1mPl
— Lyall Thomas (@SkySportsLyall) February 11, 2026