
Chelsea er sagt skoða möguleg kaup á varnarmanninum Riccardo Calafiori frá Arsenal.
Samkvæmt blaðamanninum Simon Phillips hafði Chelsea mikinn áhuga á ítalska landsliðsmanninum áður en hann gekk til liðs við Arsenal.
Nú gæti hann verið opinn fyrir félagaskiptum þars em hann, samkvæmt Phillips, er sagður vilja fá meiri spilatíma, sérstaklega sem miðvörður frekar en vinstri bakvörður.
Calafiori, sem er 23 ára, hefur staðið sig nokkuð vel í norður-London en hefur mikið glímt við meiðsli.
Talið er að Calafiori yrði alls ekki ódýr, færi hann sig um set í sumar.