

Rodri, miðjumaður Manchester City, hefur lent í ágreiningi við nágranna sína eftir að þeir kvörtuðu yfir því að hann hafi flogið dróna nálægt gluggum íbúða þeirra.
Íbúar í fjölbýlishúsi í miðborg Salford, nálægt Manchester, segja að spænski landsliðsmaðurinn hafi flugið dróna fyrir utan háhýsið þar sem hann býr í þakíbúð. Sumir telja að það hafi brotið á friðhelgi einkalífs þeirra þar sem dróninn hafi verið mjög nálægt gluggum íbúða.
Einn íbúi sagði að hann og maki hans hefðu orðið hissa þegar þeir sáu dróna svífa aðeins um metra frá glugganum meðan þau sátu heima og horfðu á sjónvarp.
„Það síðasta sem maður býst við að sjá þegar maður situr heima er dróna svífa fyrir utan gluggann. Konan mín varð mjög óróleg yfir þessu,“ sagði íbúinn.
Fleiri íbúar í húsinu hafa kvartað við þjónustufulltrúa byggingarinnar og sumir hafa jafnvel haft samband við lögreglu vegna málsins.
Lögreglan hefur staðfest að hún hyggst ræða við hinn 29 ára gamla leikmann til að ganga úr skugga um að hann sé meðvitaður um reglur sem gilda um notkun dróna, þar á meðal hvar megi fljúga þeim og hvað megi mynda.
Ekki liggur fyrir hvort einhver lög hafi verið brotin, en rannsókn málsins stendur yfir.