Mykhailo Mudryk kantmaður Chelsea hefur verið sviptur treyju númer 10 án þess að félagið nefni hann á nafn í yfirlýsingu.
Mykhailo Mudryk hefur ekkert spilað síðustu mánuði eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en mál hans er í lausu lofti.
Kantmaðurinn hefur ekki spilað eftir að hafa fallið á prófinu en hefur þó ekki fengið dóm.
Chelsea hefur ákveðið að setja tíuna á bakið á Cole Palmer sem er stjórn liðsins.
Palmer fer í treyju númer 10 á HM félagsliða í sumar og mun klæðast treyjunni á næstu leiktíð.
Mudryk hefur verið í hálfgerðum felum síðustu mánuði en mætti á úrslitaleik Sambandsdeildarinnar þar sem Chelsea vann í síðasta mánuði.