Valur tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla.
Liðið vann 0-1 sigur á ÍBV í Eyjum, en Hólmar Örn Eyjólfsson gerði eina markið eftir um stundarfjórðung.
Liðið fylgir Stjörnunni og Vestra inn í undanúrslit. Síðar í kvöld mætast Afturelding og Fram í lokaleik 8-liða úrslitanna.