Dagskrá næstu leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni var opinberuð í gær og að því tilefni hefur Ofurtölvan góða stokkað spilin og spáð fyrir um lokaniðurstöðuna næsta vor.
Því er spáð að Liverpool verji titil sinn, hafi naumlega betur gegn Arsenal sem verði þar af leiðandi í öðru sæti fjórða tímabilið í röð. Yrði það í fyrsta sinn í sögunni sem lið gerir það.
Manchester City og Chelsea fylgja þeim í Meistaradeildina samkvæmt Ofurtölvunni og eins og lenskan hefur verið undanfarin ár falla nýliðarnir þrír.
Manchester United hafnaði í 15. sæti í vor en því er spáð að liðið hoppi upp um sex sæti og í það níunda á næstu leiktíð.