Jonny Evans er búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Manchester United og er að leggja skóna á hilluna.
Þetta hefur félagslið hans Manchester United staðfest en Evans spilaði sinn síðasta leik gegn Hong Kong í æfingaleik.
Evans gekk í raðir United í annað sinn á sínum ferli árið 2023 sem var mjög óvænt og spilaði þónokkra leiki þrátt fyrir að vera ekkert unglamb.
Evans fær ekki að spila með United á næsta tímabili og ákvað sjálfur að það væri kominn tími á að leggja skóna á hilluna í kjölfarið.
Evans lék 30 deildarleiki frá 2023 til 2025 en hann var einnig hjá United frá 2004 til 2015 – hann er í dag 37 ára gamall.