

Þorlákur Árnason þjálfari karlaliðs ÍBV sagði óvænt upp störfum í gær.
Samkvæmt heimildum 433.is kom uppsögn Þorláks forráðamönnum ÍBV mikið á óvart.
Á dögunum var Alex Freyr Hilmarsson leikmaður liðsins ráðinn framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar. Áður en Alex var ráðinn samþykkti Þorlákur ráðningu hans.
Samkvæmt heimildum 433.is er ástæða uppsagnarinnar sem Þorlákur gefur upp sú að Alex Freyr var ráðnn framkvæmdastjóri deildarinnar.
Þrátt fyrir að hafa samþykkyt hana áður. Taldi hann það ekki passa að leikmaður sinn væri í reynd hálfgerður yfirmaður hans.
Þorlákur gerði frábærlega með ÍBV á sínu fyrsta ári í Bestu deildinni en hoppar nú frá borði.