

Mikel Arteta gæti yfirgefið Arsenal með stæl ef liðið nær loks að vinna titil á þessari leiktíð. Þessu heldur fyrrum leikmaður félagsins fram.
Arsenal hefur ekki unnið stóran bikar síðan FA-bikarinn fór á loft árið 2020, en staðan er björt núna, liðið trónir á toppi bæði ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildarinnar, og er komið í fjórðungsúrslit deildarbikarsins.
Arteta á rúmt eitt eitt hálft eftir af samningi sínum, en Emmanuel Petit, fyrrverandi leikmaður Arsenal, telur að Spánverjinn gæti gengið í burtu í sumar ef tímabilið endar með titli.
Petit, sem vann tvennuna með Arsenal 1998, segir að Arteta gæti leitað aftur heim til Spánar og sérstaklega til Barcelona, þar sem hann ólst upp sem leikmaður.
„Arteta gæti freistast af því að snúa aftur til Spánar, sérstaklega til félags sem hann þekkti sem ungur leikmaður,“ sagði Petit við Snabbare.
„Ef hann vinnur titil í vor gæti hann hugsað: ‘Ég hef lokið verkefninu eftir nær sjö ár. Tími til kominn að prófa eitthvað nýtt.’“
Petit bætir við að ef Barcelona banki upp á sé erfitt að hafna slíku tækifæri. „Það er eitt stærsta félag heims og lífsstíllinn hentar fjölskyldunni vel.“