

Gary Neville gagnrýndi varnarleik Chelsea harðlega eftir 3–1 tap liðsins gegn Leeds á Elland Road á miðvikudag. Chelsea varð undir strax á upphafsmínútum og mörk frá Jaka Bijol, Ao Tanaka og Dominic Calvert-Lewin tryggðu heimamönnum sannfærandi sigur.
Neville var einkar óánægður með þriðja markið, þar sem Calvert-Lewin skoraði í tómt mark eftir klaufalegt varnarmistök hjá Malo Gusto og Tosin Adarabioyo. Gusto spilaði Tosin í hættu og sá síðarnefndi missti boltann frá sér.
„Martröð fyrir Maresca, draumur fyrir Leeds,“ sagði Neville í útsendingu Sky Sports.
„Chelsea hefur ítrekað boðið þeim upp á færi. Miðverðirnir hafa verið kærulausir allan leikinn.“
Hann gagnrýndi einnig ákvörðunartöku varnarmannann. „Af hverju ertu að reyna að taka á móti boltanum og spila honum aftur? Sparkaðu honum bara frá. Og Sanchez… þetta er erfitt fyrir hann.“
Neville telur að Chelsea sé með nægilega sterkt til að enda í Meistaradeildarsæti en alls ekki í titilbaráttu. „Chelsea mun enda í topp fjórum eða fimm. En þessir miðverðir eru ekki nógu góðir, hægir á boltanum, og markvörðurinn er ekki markvörður sem vinnur titil. Sóknarmennirnir eru heldur ekki á því stigi.“