

Mikel Arteta var æfur út í leikjadagskrá ensku úrvalsdeildarinnar eftir að Arsenal missti leikmenn í. meiðsli í gær.
Declan Rice fór meiddur af velli með kálfameiðsli í 2–0 sigri á Brentford, sem færði Arsenal fimm stiga forskot á toppnum. Mörkin komu frá Mikel Merino og Bukayo Saka, sem tryggðu 18 leikja ósigraða hrinu liðsins, en gleðin varð skammvinn þegar bæði Rice og Cristhian Mosquera þurftu að yfirgefa völlinn.
Mosquera hóf leikinn ásamt Piero Hincapie í fjarveru William Saliba og Gabriel Magalhães, en Jurrien Timber leysti hann af hólmi fyrir hálfleik. Rice virtist meiðast seint í leiknum og gæti bæst við langan meiðslalista liðsins í toppbaráttunni.
Arteta sagði að meta þyrfti ástand Rice á næsta degi. Hann gagnrýndi harðlega leikjadagskrána: „Það væri frábært að fá aðeins meiri tíma til að jafna sig og vernda leikmennina. Við spiluðum á miðvikudagskvöldi og eigum svo leik á laugardagsmorgni. Það er ekki eðlilegt.“
Hann bætti við að þetta væri ekki afsökun heldur „heilbrigð skynsemi“ sem myndi gagnast öllum liðum, sérstaklega þeim sem spila í Evrópu.