
Samkvæmt Bergens Tidende hefur Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, vakið áhuga liðs í MLS-deildinni vestan hafs.
Freyr staðfestir að fyrirspurnir hafi borist, þar á meðal frá MLS, en er ekki fararhug sem stendur. „Ég hef hafnað öllum fyrirspurnum,“ segir hann í samtali við BT.
Freyr hefur gert frábæra hluti með Brann frá því hann tók við í upphafi árs. Kom hann liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar, þar sem það er að gera frábæra hluti, og tryggði einnig Evrópusæti fyrir næstu leiktíð á dögunum.
Freyr er því eftirsóttur þjálfari, en að svo stöddu alfarið einbeittur að Brann.