

Þóroddur Hjaltalín verður að störfum sem dómaraeftirlitsmaður í Sambandsdeild UEFA á fimmtudagskvöld.
Hann verður þar að störfum á leik Crystal Palace FC og AZ Alkmaar og fer leikurinn fram á Selhurst Park í London.
Þóroddur starfar sem dómarastjóri hjá KSÍ en hann var lengi vel einn fremsti dómari landsins.