fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Trúði ekki ummælum félaga síns í beinni – „Leifur, ekki reyna þetta… það yrði mesta hryðjuverk sem hefur átt sér stað“

433
Sunnudaginn 12. október 2025 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, þáttastjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Chess After Dark, voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni á 433.is þetta skiptið.

Leifur er mikill stuðningsmaður KR og blasir það nú við honum að lið hans falli úr efstu deild, ef það vinnur ekki síðustu tvo leiki Íslandsmótsins.

„Maður er búinn að alast upp við það að fylgjast með stærsta félagi landsins en nú horfir fall við manni í fyrsta skiptið. Það eina sem vinnur með okkur í dag er sagan. Sagan, að hafa aldrei fallið, er haldreipið okkar en það titrar,“ sagði Leifur.

Hann segir enn fremur að þetta eigi ekki að koma mönnum of mikið á óvart.

„Það var alltaf hætta á því að við gætum fallið, við verðum bara að taka því eins og menn. Við erum á vegferð, þó það væri vissulega leiðinlegt upp á söguna.“

Þarna vildi sessunautur hans aðeins staldra við.

„Leifur, það var enginn að tala um að þið gætuð fallið. Leifur, ekki reyna þetta. Það er af sem áður var. Ef KR fellur, það yrði mesta hryðjuverk sem hefur átt sér stað í íslenskum fótbolta, allavega frá því við fæddumst,“ sagði Birkir.

Leifur viðurkennir að hann sé ekki bjartsýnn á að KR haldi sæti sínu, en liðið á eftir að mæta ÍBV og Vestra.

„Ég er það ekki, þetta eru erfiðir leikir sem við eigum eftir.“

Þátturinn í heild er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang

Æltaði á leik í Meistaradeildinni en mætti á vitlausan leikvang
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum

Nokkur úrvalsdeildarlið með augastað á Norðmanninum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns

Rauf þögnina um martröð liðsfélaga síns
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins

De Gea og Rúnar Alex styðja við bakið á Kinsky eftir martröð gærkvöldsins
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi

Er orðinn sextugur en kærusturnar verða sífellt yngri – Stundaði kynlíf með þremur konum á einum degi