David Beckham eigandi Inter Miami vakti athygli á leik liðsins gegn PSG í gær þar sem liðið tapaði á HM félagsliða.
Beckham mætti þar í fatla eftir aðgerð sem hann gekkst undir í vikunni.
Beckham fór í aðgerð í vikunni til að laga meiðsli sem hann varð fyrir í knattspyrnuleik fyrir 22 árum síðan.
Beckham fór undir hnífinn vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Suður Afríku árið 2003.
Beckham átti farsælan feril með enska landsliðinu og var um tíma fyrirliði liðsins.
Það eru nokkur ár síðan Beckham hætti í fótbolta en meiðslin í hendinni höfðu pirrað hann síðustu ár.