fbpx
Laugardagur 01.nóvember 2025
433Sport

Leggur skóna óvænt á hilluna

Victor Pálsson
Fimmtudaginn 29. maí 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Carlos Vela hefur staðfest það að hann sé búinn að leggja skóna á hilluna 36 ára gamall en þessi ákvörðun kemur þónokkrum á óvart.

Vela varð 36 ára gamall í mars á þessu ári en hefur verið án félags síðan í fyrra eftir að hafa yfirgefið Los Angeles FC í Bandaríkjunum.

Vela er talinn vera einn besti leikmaður í sögu MLS deildarinnar í Bandaríkjunum en hann lék þar í sex ár eftir komu frá Real Sociedad á Spáni.

Vela var einnig frábær fyrir Sociedad en hann er fyrrum undrabarn Arsenal og var hjá enska félaginu frá 2005 til 2012.

Mexikóinn hefur ákveðið að sleppa því að finna sér nýtt félag og eru skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít

Svona væri staðan ef föst leikatriði væru tekin úr jöfnunni – Arsenal og United væru í djúpum skít
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Allt í apaskít vegna félagaskipta Zubimendi til Arsenal – Dómsmál að fara í gang á Spáni

Allt í apaskít vegna félagaskipta Zubimendi til Arsenal – Dómsmál að fara í gang á Spáni