Gísli Freyr Valdórsson stjórnandi hlaðvarpsins Þjóðmál segir að það sé ekki gott að búa til samfélag þar sem úrslit í íþróttaleikjum skipti ekki máli.
Hann ræðir um þetta í hlaðvarpinu Ein pæling, hann segir það ekki gott þegar foreldrar eða þjálfarar segi að úrslit í leikjum skipti ekki máli.
Gísli talar af reynslu sem faðir. „Það er verra þegar foreldrar eða þjálfarar segja að það skipti ekki máli,“ segir Gísli.
„Ég hef keyrt heim af 200 fótboltamótum, krakkarnir eru mikið að ræða hvernig þetta fór. Það skiptir þá máli hvernig þetta fer, það er í fínu lagi.“
Hann segir það lærdóm fyrir lífið að læra að tapa, takast á við slíkt áfall enda sé lífið þannig að áföll muni eiga sér stað.
„Það er í góðu lagi að vera fúll ef þú tapar, ef þú ert fúll að tapa íþróttaleik. Þá er það bara gott, þú hefur gott af því að tapa. Þú hefur gott af því að mistakast, þú hefur gott af því að lenda í erfiðleikum.“
„Það er vont að við séum samfélag þar sem ekki má gera mistök, það eru þau sem móta okkur og gera okkur sterkari.“
Gísli heldur svo áfram. „Ég sem foreldri vill ekki að börnin lendi í fjárhagsáhyggjum, ástarsorg, sagt upp í starfi. Við höfum öll lent í þessu sem fullorðið fólk, þetta er ömurlegt þegar það gerist en það mótar okkur.“
Að endingu tekur Gísli dæmi um sjálfan sig þegar hann var aðstoðarmaður innanríkisráðherra og lak út minnisblaði í fjölmiðla.
„Ég gerði stór mistök fyrir tíu árum sem var landsþekkt, en þetta mótar þig og sterkari. Gerir þig færari að gera hlutina betur,“ segir Gísli.
Glænýtt hlaðvarp komið út á https://t.co/Vr1ZLIsD6W með Gísla Frey Valdórssyni!
Rætt um stöðu Sjálfstæðisflokksins, gengdarlaus ríkisútgjöld, rétttrúnaðinn, eitraðar karlmennsku, fjölmiðlanefnd, mannréttindastofnun, upplýsingaóreiðu í veirufaraldri og margt fleira. pic.twitter.com/ave7T7uBVC
— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) September 10, 2024