Luka Modric náði að jafna met Cristiano Ronaldo um helgina er hann lék með Króatíu gegn Spánverjum.
Modric er aðeins annar leikmaður í sögunni til að spila á fimm mismunandi lokakeppnum EM.
Því miður fyrir Modric þá heldur hann ekki þessu meti ásamt Ronaldo en sá síðarnefndi á eftir að spila á þessu móti.
Ronaldo mun leika með Portúgal gegn Tékkum á morgun og verður það hans sjötta EM mót sem er magnaður árangur.
Ljóst er að Modric er að leika á sínu síðasta EM en hann verður 39 ára gamall í september.