fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
433Sport

Þorvaldur staðfestir framboð til formanns KSÍ

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 9. janúar 2024 10:23

Þorvaldur Örlygsson tekur slaginn við Guðna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Örlygsson, rekstrarstjóri og íþróttastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins í næsta mánuði. Þorvaldur, sem var atvinnumaður í Þýskalandi og á Englandi um árabil, spilaði með KA, Fram og íslenska landsliðinu, þjálfaði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri landslið Íslands, þekkir íslenska knattspyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verkefni bíða KSÍ.

Hann mun berjast við Guðna Bergsson, fyrrum formann KSÍ um stólinn í Laugardalnum en Guðni staðfesti framboð sitt fyrir áramót. Fleiri gætu komið fram á næstu dögum.

Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að hætta sem formaður í febrúar eftir rúm tvö ár í starfi en ljóst er að nýr formaður þarf að taka til í bókhaldinu hjá KSÍ sem rekið var með miklu tapi á síðasta ári.

„Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana um að gefa kost á mér í þetta mikilvæga starf og eftir að hafa rætt við félags- og forráðamenn íslenskra knattspyrnufélaga og heyrt skoðanir þeirra á fjölmörgum þáttum íþróttarinnar, hef ég ákveðið að taka áskoruninni. Ég deili skoðunum, viðhorfum, áhersluatriðum, áhyggjum og framtíðarsýn fjölmargra félaga minna í íslenska boltanum og er þeirrar skoðunar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knattspyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfinguna fimm ára gamall og hún er það enn. Ég veit að þekking mín, reynsla og áhugi mun reynast KSÍ vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“

Meðal áhersluatriða nefnir Þorvaldur endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ, ábyrgan rekstur, eflingu knattspyrnu á landsbyggðinni, styrkingu kvennaboltans, endurskoðun dómaramála og byggingu þjóðarleikvangs.

„Við þurfum að fara í endurskoðun á stefnu og hlutverki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af aukinni einangrun félaga á landsbyggðinni. Liðum fækkar, ferðakostnaður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dómaramál eru mér að sama skapi hugleikin. Ég vil fjölga dómurum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skólakerfið og auka áhuga yngri kynslóða á dómarastarfinu, efla þannig stéttina og þar með bæta dómgæsluna. Ég vil tafarlausar viðræður við ríki og borg um þjóðarleikvang og tel að við eigum að endurbyggja Laugardalsvöll upp sem slíkan.“

Meðal helstu áhersluatriða Þorvaldar má nefna:
 Endurskoða stefnu og hlutverk KSÍ
 Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ
 Auka og bæta samskipti lykilaðila í íslenskri knattspyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF
 Stofna framkvæmdastjórn KSÍ
 Efla kvennaknattspyrnu á öllum sviðum, frá grasrót til landsliða
 Tryggja jafnrétti og fjölga konum innan stjórnkerfis KSÍ
 Koma hreyfingu á byggingu þjóðarleikvangs sem áfram verði í Laugardal
 Styrkja félagslið á landsbyggðinni og lækka ferðakostnað
 Fjölga dómurum og koma þeim þætti inn í skólakerfið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja

Drátturinn í bikarnum: Slegist um stoltið í Kópavogi – Valur fer til Eyja
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark

City óttast að Wirtz fari til Bayern og eru klárir með annað skotmark
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju

Nike eyðir út auglýsingu – Birtu óvart myndir af nýrri Chelsea treyju
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham

Ryan Reynolds ætlar að taka upp heftið í sumar – Reynir að kaupa fyrirliða Fulham
433Sport
Í gær

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið

Haaland hjólar í alla sína samherja fyrir tímabilið
433Sport
Í gær

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi

Skandall í uppsiglingu – Stjarna og þrír aðrir sakaðir um að dreifa barnaklámi