Barcelona hefur áhuga á Julian Alvarez, sóknarmanni Manchester City. Spænski miðillinn Sport segir frá þessu.
Argentínumaðurinn er á öðru tímabili sínu hjá City og hefur verið frábær það sem af er leiktíð. Er hann með sex mörk og fimm stoðsendingar í 13 leikjum og orðinn lykilmaður í liði Pep Guardiola.
Samningur Alvarez gildir til 2028 og það bendir ekkert til þess að City myndi selja hann.
Það breytir því þó ekki að Barcelona hefur áhuga en vegna fjárhagsvandræða félagsins verður að teljast ólíklegt að það takist að kaupa Alvarez frá City.