fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
433Sport

Iða í skinninu eftir nýjustu vendingar – Myndband í dreifingu af stjörnu Arsenal varpar ljósi á framhaldið

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 23. janúar 2023 18:30

Samsett Mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabriel Jesus, stjörnu­leik­maður enska úr­vals­deildar­fé­lagsins Arsenal, heyrist gefa vís­bendingar um mögu­lega endur­komu sína eftir meiðsli í mynd­bandi sem hefur farið í dreifingu á sam­fé­lags­miðlum og tekið er í stúkunni á Emira­tes Stadium um ný­liðna helgi á leik liðsins gegn Manchester United.

Arsenal vann leikinn 3-2 með sigur­marki frá Eddi­e Nketiah á loka­mínútunum en sjálfur er Gabriel Jesus frá vegna hné­meiðsla sem hann hlaut á heims­meistara­mótinu í knatt­spyrnu með Brasilíu undir lok síðasta árs.

Mynd­band sem farið hefur í dreifingu á sam­fé­lags­miðlum og sýnir Jesus eiga í sam­ræðum við UFC goð­sögnina Khabib Nur­magomedov hefur gert stuðnings­menn Arsenal spennta en á því heyrist Jesus segja að um 4-5 vikur séu þar til hann verði mættur aftur á völlinn með Arsenal.

Jesus gekk til liðs við Arsenal fyrir yfir­standandi tíma­bili og hafði verið á frá­bæru skriði með liðinu áður en hann hélt á HM með Brasilíu og meiddist undir lok síðasta árs.

Arsenal er með fimm stiga for­skot á toppi ensku úr­vals­deildarinnar og á leik til góða á Manchester City í 2. sæti deildarinnar eftir ný­liðna helgi. Margir bjuggust við því að liðið myndi eiga erfitt upp­dráttar án Jesus þar sem það kom í hlut Nketiah að fylla upp í hans skarð en sá hefur gert það af stakri prýði.

Nketiah skoraði meðal annars tvö af þremur mörkum Arsenal gegn Manchester United um ný­liðna helgi en fé­lagið hefur ekki tapað leik í ensku úr­vals­deildinni síðan þann 4. septem­ber á síðasta ári.

Mynd­bandið af Jesus ræða bið Khabib má sjá hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja

Flaggað í hálfa á Anfield – Stuðningsmenn mæta með blóm og syrgja
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vill vera áfram og fá nýjan samning frekar en að fara til Bayern

Vill vera áfram og fá nýjan samning frekar en að fara til Bayern
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þorvaldur ræðir vinnuna á bak við tjöldin – „Þekking og kunnátta hafa hjálpað“

Þorvaldur ræðir vinnuna á bak við tjöldin – „Þekking og kunnátta hafa hjálpað“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota

Knattspyrnuheimurinn í áfalli – Samúðarkveðjur og sorg eftir andlát Diogo Jota
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Lífið lék við Jota þegar hann lést – Gifti sig fyrir tveimur vikum og átti þrjú börn

Lífið lék við Jota þegar hann lést – Gifti sig fyrir tveimur vikum og átti þrjú börn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gagnrýna vinnubrögð KSÍ í Sviss – „Þetta er klár­lega eitt­hvað sem við fjöl­miðlamenn mynd­um vilja breyta“

Gagnrýna vinnubrögð KSÍ í Sviss – „Þetta er klár­lega eitt­hvað sem við fjöl­miðlamenn mynd­um vilja breyta“