Mohammed Kudus skoraði virkilega laglegt mark fyrir Ajax í kvöld sem spilar við Liverpool í Meistaradeildinni.
Staðan er 1-1 þegar þetta er skrifað en Kudus jafnaði metin fyrir Ajax á 27. mínútu fyrri hálfleiks.
Það mark kom tíu mínútum eftir að Mohamed Salah hafði komið Liverpool yfir með laglegu marki.
Kudus kláraði færi sitt frábærlega í kvöld en hann þrumaði boltanum í þverslá og inn.
Markið má sjá hér.
What a goal by Kudus, 🇬🇭 to the whole wiase pic.twitter.com/L6sbYppuih
— Yanks (@Yanks_Uchiha) September 13, 2022