Leiknir Reykjavík hefur fengið Zean Dalügge, 19 ára gamlan danskan sóknarmann, á láni frá Lyngby. Lánssamningurinn gildir út þetta tímabil í Bestu deildinni.
Samband Leiknis og Lyngby er sterkt. Freyr Alexandersson er þjálfari danska liðsins og þar spilar Sævar Atli Magnússon, sem var fyrirliði Leiknis í fyrra.
„Við bindum vonir við að þessi sending frá vinum okkar í Kóngsins Lyngby reynist farsæl fyrir alla aðila og bjóðum þennan unga leikmann velkominn í Breiðholtið,“ segir Oscar Clausen, formaður Leiknis.
„Eftir langa fjarveru vegna meiðsla er mikilvægt fyrir Zean að fá spiltíma í fullorðinsbolta til að þróun hans haldi áfram og til þess gefst tækifæri á Íslandi. Við þekkjum Leikni vel og þetta er gamla félag Sævars svo við vonum að með dvöl sinni fyrir norðan geti hann fengið margar mínútur í lappirnar og snúið sterkari til baka,“ segir Nicas Kjeldsen, yfirmaður fótboltamála hjá Lyngby.
Leiknir hefur verið í vandræðum á þessari leiktíð og er í ellefta sæti Bestu deildarinnar með tíu stig, stigi frá öruggu sæti.