Selfoss er komið á toppinn í Lengjudeild karla eftir leik við Fjölni á heimavelli sínum í kvöld.
Selfyssingar hafa spilað glimrandi vel í sumar og eru með eitt tap til þessa sem kom gegn Kórdrengjum í síðustu umferð.
Sigur var raunin í kvöld en Selfoss hafði betur 2-0 þar sem Gonzalo Zamorano komst á blað. Seinna markið var sjálfsmark.
Selfoss er á toppnum með 17 stig en Fjölnir situr í sjötta sætinu með 11 stig.
Í hinum leik kvöldsins vann Afturelding heimasigur á Þór en Þórsarar hafa ekki verið sannfærandi í sumar.
Afturelding vann þennan leik 4-1 á heimavelli og lyfti sér upp í áttunda sætið með níu stig. Þór er í tíunda sæti með aðeins fimm.
Selfoss 2 – 0 Fjölnir
1-0 Gonzalo Zamorano (’44)
2-0 Guðmundur Þór Júlíusson (’89, sjálfsmark)
Afturelding 4 – 1 Þór
1-0 Georg Bjarnason (’24)
2-0 Aron Elí Sævarsson (’27)
3-0 Aron Elí Sævarsson (’66)
4-0 Orri Sigurjónsson (’73, sjálfsmark)
4-1 Elvar Baldvinsson (’74)