fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
433Sport

ÍSÍ harmar að ekki sé gert ráð fyrir fjármögnun

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 31. mars 2022 16:30

Mynd/Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur sent frá sér ályktun vegna umræðu um þjóðarleikvanga þar sem m.a. kemur fram að framkvæmdastjórnin telji það sé „algerlega óásættanlegt ef ekki verður unnt að hefja á þessu ári undirbúning að byggingu þjóðaleikvanga“.

Ályktun vegna umræðu um þjóðarleikvanga

31.03.2022

Framkvæmdastjórn ÍSÍ fundaði síðdegis í gær og ályktaði eftirfarandi vegna umræðu um þjóðarleikvanga.

„Að undanförnu hefur stýrihópur verið að störfum á forræði ríkisstjórnarinnar til þess að meta þörf fyrir þjóðarleikvanga, forgangsraða þeim framkvæmdum og móta næstu skref. Er það gríðarlega mikilvæg vinna til að undirbúa uppbygginguna framundan.

Stýrihópurinn mun vera að ljúka störfum og fagnar framkvæmdastjórn ÍSÍ því en harmar hins vegar að ekki sé gert ráð fyrir fjármögnun þeirra framkvæmda í nýframlagðri fjármálaáætlun.

Framkvæmdastjórn ÍSÍ telur það algerlega óásættanlegt ef ekki verður unnt að hefja á þessu ári undirbúning að byggingu þjóðaleikvanga og leggja þannig af stað í þá vegferð sem nauðsynleg er til að tryggja að íslensk landslið geti keppt á löglegum heimavöllum á Íslandi á allra næstu árum. Það er ekki lengur hægt að víkja sér undan því að bregðast við þeim algerlega ófullnægjandi aðstæðum sem mörg landsliða okkar búa við. Því er brýnt að gert sé ráð fyrir framkvæmdunum í fjármálaáætlun þannig að það fjármagn sem rætt er um að eigi að nota til þessara framkvæmda verði sérstaklega eyrnamerkt þeim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Óskar Hrafn ætlar ekki að tjá sig um uppsögnina

Óskar Hrafn ætlar ekki að tjá sig um uppsögnina
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eysteinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ

Eysteinn nýr framkvæmdastjóri KSÍ
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United vill losa sig við Casemiro og fá þennan í staðinn

United vill losa sig við Casemiro og fá þennan í staðinn
433Sport
Í gær

Þetta segja veðbankarnir: Hver tekur við á Old Trafford? – Var númer eitt en er ekki sannfærður

Þetta segja veðbankarnir: Hver tekur við á Old Trafford? – Var númer eitt en er ekki sannfærður
433Sport
Í gær

Fyrsta konan til að komast upp á vegg

Fyrsta konan til að komast upp á vegg