Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrir FCK í kvöld sem gerði 1-1 jafntefli við Dortmund en er úr leik í Meistaradeildinni.
FCK fékk aðeins þrjú stig í riðlakeppninni og fer ekki í Evrópudeildina. Manchester City og Dortmund fara upp úr riðlinum en Sevilla fer í Evrópudeild.
Það er heldur betur atyhyglisvert að Christian Nikolaj Sorensen lék með FCK í kvöld en hann var um tíma leikmaður Þróttar R. hér heima.
Hrafnkell Freyr Ágústsson vekur athygli á þessu á Twitter en Sorensen lék með Þrótturum árið 2016 í Pepsi-deild karla.
Hann skoraði tvö mörk í 12 leikjum fyrir Þrótt en um er að ræða bakvörð sem fór síðar til Frederica og svo Viborg.
Fyrr á þessu ári skrifaði Sorensen undir samning við FCK þrítugur að aldri og kom við sögu í Meistaradeildinni í kvöld.
Christian Sörensen grunaði líklega ekki 24 ára að taka 1-2 við Tonny Mawejje að hann myndi spila CL leik gegn Dortmund einn daginn. pic.twitter.com/QoxW4Rgobe
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) November 2, 2022