
Sparkspekingurinn og fyrrum leikmaður Manchester United, Gary Neville, telur ekki að Arsenal vinni ensku úrvalsdeildina þó liðið hafi farið afar vel af stað.
Arsenal er á toppi deildarinnar með 24 að níu leikjum loknum, stigi meira en Manchester City. Liðið vann Liverpool 3-2 í gær og um síðustu helgi vann liðið Tottenham.
„Þeir hafa sigrað Tottenham og Liverpool, þetta eru stórir leikir,“ segir Neville.
Hann telur hins vegar að City muni að lokum sigla fram úr. Bláliðar hafa litið afar vel út það sem af er leiktíð. Um helgina vann City 4-0 sigur á Southampton og eltir liðið Arsenal eins og skugginn.
„Ég held ekki að Arsenal muni vinna deildina, ég held að City geri það auðveldlega þó ég viti að þeir séu ekki á toppnum. Arsenal þarf að vera upp á sitt allra besta til að halda í við þá.“