

Breiðablik er Íslandsmeistari karla árið 2022 eftir leik Stjörnunnar og Víkings sem fór fram á Samsung vellinum í kvöld.
Stjarnan vann Víking 2-1 í kvöld sem þýðir að Breiðablik er á toppi deildarinnar með 57 stig, 11 stigum á undan bæði Víkingum og KA þegar þrjár umferðir eru eftir.
Það er því ekki möguleiki fyrir hin liðin að ná Blikum sem hafa verið besta lið mótsins í sumar.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, ræddi við 433 í kvöld er Blikar fögnuðu saman eftir að hafa horft á leikinn.
,,Já ég átti eiginlega von á þessu svona innst inni þegar þú segir það, smá gut tilfinning en rökhugsunin sagði kannski nei,“ sagði Höskuldur.
,,Eins og ég hef sagt í smá tíma, því fyrr því betra því meiri stigamunur því flottara og nettara, við erum alveg til í þetta hér.“
,,Við pössum að halda standard og ljúka þessu með sama stæl og við höfum spilað allt þetta mót.“
,,Strax og síðasta tímabili lauk þá var maður með bullandi þráhyggju að taka þetta núna og taka þetta örugglega. Þetta er eina leiðin til að svara fyrir sjálfan sig og fyrir liðið. Ég held að við höfum sýnt að það eru alvöru hreðjar í þessu liði og karakter.“