

Gary Neville sérfræðingur Sky Sports segist ekki geta metið það hvort Liverpool sé á niðurleið eða bara aðeins að hiksta.
Neville ræddi málið eftir 3-2 sigur Arsenal á Liverpool á Emirates vellinum í gær. Liverpool er nú fjórtán stigum á eftir toppliði Arsenal.
Liverpool liðið hefur verið ólíkt sjálfum sér undanfarnar vikur og Jurgen Klopp stjóri Liverpool hefur ekki fundið svörin.
„Hjá Liverpool, er þetta smá hikst eða er liðið á niðurleið?,“ spurði Neville.
„Í fyrri hálfleik, þá fannst mér þeir svara vel kröftugri byrjun. Það er hins vegar áhyggjuefni fyrir Liverpool hvernig síðari hálfleikurinn var. Þeir voru skugginn af sjálfum sér.“
„Frammistaða þeirra í síðari hálfleik er áhyggjuefni fyrir Jurgen Klopp. Það er ekki bara frammistaðan með boltann en hvernig þeir spiluðu. Heldur líka hvernig þeir voru í að elta boltann og í pressu.“

Neville segir að Liverpool sé langt frá því að spila þann fótbolta sem Klopp vill spila.
„Við vitum að Jurgen Klopp kom hingað til lands með þungarokks fótbolta sem hann vill spila, þetta var ekki þungarokks fótbolti (gegn Arsenal). þetta var bara eins og bassagítar.
„Þeir voru virkilega slakir í seinni hálfleik. Ég hefði áhyggjur ef ég væri Liverpool aðdáandi, þjálfari eða leikmaður yfir þessum síðari hálfleik.“