

Breiðablik er með níu fingur á skildinum sem fæst fyrir það að vinna Bestu deild karla. Liðið hefur ellefu stiga forskot á Víking sem á fjóra leiki eftir.
Breiðablik vann góðan sigur á KA á útivelli á laugardag, eftir þann leik var ljóst að KA gæti ekki náð Blikum að stigum.
Blikar eiga þrjá leiki eftir en Víkingur fjóra. Lærisveinar, Arnars Gunnlaugssonar heimsækja Stjörnuna í kvöld.
Mistakist Víkingi að vinna er ljóst að Breiðablik verður Íslandsmeistari í sófanum heima.
Vinni Víkingar gætu Blikar samt orðið Íslandsmeistarar áður en þeir spila aftur. Um næstu helgi spilar Víkingur á undan Blikum.
Breiðablik tekur á móti KR klukkan 19:15 en klukkan 17:00 hefst leikur Víkings og KA. Mistakist Víkingi að vinna þann leik verða Blikar Íslandsmeistarar í miðri upphitun fyrir leik sinn gegn KR.