Heimir Guðjónsson, þjálfari Valsmanna, sagði að aðeins eitt lið hefði verið inni á vellinum í síðari háfleik er lærisveinar hans töpuðu stórt, 6-2, gegn Breiðablik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í kvöld.
Valur leiddi 2-1 á einum tímapunkti í leiknum en Viktor Örn Margeirsson jafnaði metin fyrir Blika stuttu fyrir hálfleik og heimamenn komu af miklum krafti í síðari háfleik og skoruðu fjögur mörk.
„Mér fannst við fínir í fyrri hálfleik, sköpuðum góða möguleika svo vorum við náttúrulega bara klaufar að fara ekki inn í hálfleikinn með allavegana einhverja forystu,“ sagði Heimir í viðtali á Rúv eftir leik.
„Svo í seinni hálfleik þá var eins og út í Víking bara eitt lið inni á vellinum og við fengum á okkur fjögur mörk eftir föst leikatriði og eitt markið var þannig að ég held þeir hafi unnið þrjá eða fjóra seinni bolta og það hlýtur bara að vera met í íslenskum fótbolta.“
Aðspurður hvort starf hans sem þjálfari Vals væri í hættu sagðist Heimir ekki hafa áhyggjur af því. „Nei, það er ekkert sem ég hef áhyggjur af, ég er bara ráðinn í vinnu og það eina sem ég er hræddur við í fótbolta er ég sjálfur þannig ég er ekkert að spá í það.“
„Við vissum það þegar mótið byrjaði að við erum með nýtt lið og þetta gæti tekið einhvern tíma. Reyndar hefur mótlætið verið aðeins meira en við kannski reiknuðum með. Við verðum bara að standa saman og snúa saman bökum og halda áfram. Það er jákvætt fyrir okkur að við erum að fá leikmenn úr meiðslum og það þýðir ekkert að henda inn hvíta handklæðinu,“ bætti Heimir við.